Kallað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á veitingastað í nótt. Viðskiptavinur hafði neitað að yfirgefa staðinn og hótað starfsfólki.
Taldi lögreglan víst að maðurinn væri undir talsverðum áhrifum en viðkomandi var einkar brjálaður út í spilakassa, sem átti að hafa haft af honum talsvert magn af peningum. Var hann leiddur út af lögreglu.
Bifreið mældist á hraðamælingu á 170 kílómetrum á klukkustund á akbraut þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Ökumaðurinn taldi sig einungis hafa ekið á 130 kílómetrum á klukkustund og viðurkenndi að hann hafi neytt kannabisefna. Var viðkomandi handtekinn, færður á lögreglustöð þar sem hann fær að afhenda lögreglu ökuskírteinið sitt.
Í austurbænum var hávær tónlist spiluð utandyra. Lögreglan fór á vettvang og fékk aðila málsins til að lækka. Ítrekaði hún slíkt væri ekki boðlegt um miðja nótt.