Bubbi Morthens, einn allra ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar var með tæpar 700 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra sem lögð var fram í vikunni.
Í skránni er hægt að sjá að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir er með hærri laun. Hrafnhildur er markaðs- og gæðastýra Hjallastefnunnar og voru laun Hrafnhildar á síðasta ári 935 þúsund krónur. Hrafnhildur hefur starfað hjá Hjallastefnunni frá árinu 2019 en þar áður var hún framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu.
Rétt eins og aðrir listamenn hefur hann sennilega fengið að finna fyrir afleiðingum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Tónleikahald lá niðri nokkuð stóran hluta ársins í fyrra en Bubbi er þó í hópi þeirra listamanna sem fá heiðurslaun samkvæmt ákvörðun þingsins.