„Bubbi Morthens hefur sannarlega sveiflast með tíðaranda okkar samfélags fram og aftur, verið gagnrýndur fyrir tækifærismennsku og fyrir að sýna af sér karlrembu en er einn af fáum sem þó gengst oft við því þegar hann ruglast, sem myndi teljast gott fordæmi um jákvæða karlmennsku,“ segir Þorsteinn V. Einarsson í hlaðvarpinu Karlmennskunni.
Bubbi segir þar hafa upplifa sig oft sem utangátta, utanvelta og steingert tröll enda alinn upp, að eigin sögn, í eitraðri karlmennsku og kvennakúgun.
Hann opnaði sig um erfiða reynslu í viðtali í hlaðvarpinu Karlmennskan hjá Þorsteini V. Einarssyni á dögunum. Bubbi sagði frá því þegar hann var misnotaður á unglingsaldri og lýsti því hvaða áhrif það hafði á hans sjálfsmynd og samskipti við kvenfólk.
„Ég er misnotaður 14 ára gamall sem í rauninni sviptir mig unglingsárunum, sviptir mig nándinni og getunni til að eiga eðlileg samskipti við kvenfólk, sem dæmi. En það sem ég hef lært á þessari vegferð er að það er engin leið að eiga möguleika á heilun öðruvísi en að það verði sátt og samtal.“
Í viðtalinu segir Bubbi frá sjálfsvinnunni sem hann lagðist í til að vinna úr ofbeldinu. Þar segir hann frá fyrstu tilraun sinni til að opna á umræðu um misnotkun sína hjá sálfræðingi sem hann fór til árið 2004. Bubbi segir að þegar hann byrjaði að ræða kynferðisofbeldið við sálfræðinginn, sem var karlmaður, hafi hann brugðist sérkennilega við. „Hann skildi ekki hvað ég var að tala um og ýtti þessu bara til hliðar.“
Að sögn Bubba fann hann sér síðan annan aðila til þess að hjálpa sér í gegnum það flókna ferli að vinda ofan af áhrifunum sem misnotkunin hafði á líf hans. En hún litaði samskipti hans við kvenfólk um langt skeið.
„Ég var ekki búinn að sofa hjá stelpu þegar þetta gerist. Ég var bara 14 ára. Ég var skotinn í stelpu en frá þessum tímapunkti þá var heilbrigt kynlíf tekið frá mér og getan til að stunda kynlíf með nánd, ég var sviptur henni. Punktur. Það er bara þannig. Ég átti nánara samband við klám heldur en t.d. að eiga eðlileg samskipti við konur,“ segir Bubbi.