Starfsfólk bráðamóttöku hafði samband við lögreglu í gærkvöldi vegna einstaklings sem var til vandræða og lét illa. Lögregla fór á vettvang en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort viðkomandi hafi verið handtekinn fyrir lætin. Í hverfi 108 var tilkynnt um rúðubrot í skólabyggingu og líkamsárás á skemmtistað.
Síðar um kvöldið handtók lögregla þrjá menn í miðbæ Reykjavíkur í kjölfar líkamsárásar. Samkvæmt dagbók lögreglu var þolandi með áverka eftir árásina og var hann því fluttur á bráðamóttöku til skoðunar. Mönnunum var sleppt úr haldi að skýrslutöku lokinni. Í Kópavogi sinnti lögregla útköllum vegna umferðaróhapps og einstaklings sem hafði fallið ofan í skurð. Auk þess voru nokkrir ökumenn stöðvaðir sem eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna.