Gunnar Hrafn Jónsson, fjölmiðlamaður og fyrrum þingmaður Pírata býðst til að skipta við fatlaðan flóttamann um staðsetningu.
„Ég skal flytja til Grikklands, í alvöru, í skiptum fyrir að hleypa einum fötluðum flóttamanni til Íslands,“ segir Gunnar Hrafn í nýlegri færslu á Facebook. Og hann hélt áfram:
„Þá þarf ekki að díla við þessa skelfilegu hugmynd um að hér búi fleiri en handfylli af fólki. Gefið mér grískt vegabréf og hleypið einhverjum hingað sem þarf meira á því að halda. Mig langar ekki lengur að búa hérna með “ykkur”, einhver annar ætti að fá að njóta þess.“
Þess má geta að Gunnar Hrafn er sonur Jónínu Léósdóttur rithöfundar og eiginkonu Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrum forsætisráðherra.