Föstudagur 8. nóvember, 2024
8.8 C
Reykjavik

Dáðum Þróttara hent úr landi: „Í Gana bíður mín ekkert“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íþróttafélagið Þróttur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna starfsmannsins Isaac Kwateng.

Isaac Kwateng er dáður í Laugarneshverfi en undanfarin tvö ár hefur hann verið vallarstjóri Þróttar og hefur búið á landinu síðan 2018. Isaac er frá Gana og nú stendur til að senda hann úr landi.

„Okkur þykir afskaplega leitt að tilkynna ykkur að enn einn steinninn hefur verið lagður í götu Isaac okkar. Félaginu var á dögunum tilkynnt af lögreglumanni sem mætti á skrifstofu Þróttar að búið væri að kaupa flugmiða fyrir Isaac og til stæði að flytja hann af landi brott þann 16. október næstkomandi. Engar frekari upplýsingar um málið liggja fyrir,“ sagði í tilkynningu sem Þróttur setti á heimasíðu félagsins.

„Isaac er enn í starfi vallarstjóra Þróttar og hefur verið frá byrjun árs 2022, ásamt því að vera leikmaður varaliðs meistaraflokks karla. Á sex mánaða fresti hefur félagið endurnýjað umsókn hans um dvalar- og atvinnuleyfi og einmitt núna er slík endurnýjun í gangi og beðið er niðurstöðu. Fram að þessu vorum við bjartsýn enda hafa engar forsendur breyst hvað vinnu hans varðar fyrir félagið.“

Þá sagði félagið að Isaac hafi sótt um íslenskan ríkisborgararétt og vonaðist félagið og hann sjálfur að umsókn hans yrði tekin fyrir á Alþingi í desember.

„Okkur rennur blóðið til skyldunnar að upplýsa ykkur kæra samfélag um stöðu þessa máls. Ekki síst þar sem mörg hundruð ykkar komuð saman og sýnduð Isaac svo fallegan stuðning á Avis-vellinum í lok júlí síðastliðinn. Okkur þykir ótrúlegt að honum dugi ekki að borga hér skatta og vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Í von um að réttlætið myndi sigra hefur Isaac helt sér í íslenskunám og er að taka bílpróf til að ná enn betri tengingu við samfélagið. Það er ótrúlega sárt að sjá að öll baráttan fyrir veru þessa góða manns hér hjá okkur hafi ekki skilað árangri. Takk fyrir alla manngæskuna kæra samfélag.“

„Ég grét. Ég viðurkenni það,“ sagði Isaac í viðtali við Vísi. „Þetta eru erfiðar fréttir fyrir mig að melta. Hér á landi á ég vini og fjölskyldu, en í Gana bíður mín ekkert.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -