Laugardagur 5. október, 2024
9.8 C
Reykjavik

Dagný kennari hefur áhyggjur: „Óskandi að skólakerfið væri ekki tengt við pólitík“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Undanfarnar vikur hafa átt sér stað miklar og háværar umræður um íslenska skólakerfið og eru skiptar skoðanir um það þessa stundina. Dagný Gísladóttir kennari skrifaði pistil um sína reynslu og upplifun sem kennari.

Ef þú bara vissir hvað mér þykir gaman að mæta í vinnuna. Nýjar áskoranir á hverjum degi. Ótal tækifæri til að byggja upp einstaklinga framtíðarinnar og hvetja þá til góðra verka. Læra meira en í gær, kenna allt milli himins og jarðar og jafnvel skoða hluti sem maður vissi ekki að væru til. Sjá framfarir nemenda, litlu hlutirnir og stóru sigrarnir. Upplifa gleði og sorg, taka þátt í lífi einstaklega sem skipta mig miklu máli, okkur öll, alla sem starfa í skóla.

Finna námsefni við hæfi, huga að áhugasviði hvers og eins og reyni eftir bestu getu að nálgast alla á þeirra forsendum á eins fjölbreyttan hátt og hugsast getur. Vinna eftir Aðalnámskrá grunnskóla, skólanámskrá, Barnasáttmálanum, Heimsmarkmiðunum og hinum ýmsu lögum og reglum. Enn um leið sinna samfélagslegri skildu ef þurfa þykir, ásamt því að skella einum og einum plástri á bæði sýnileg og ósýnileg sár,“ skrifar Dagný á Facebook.

Dagný segir að hún styðji foreldra og forráðamenn sem koma að nemendum. Þetta sé samstarfsverkefni allra og það hjálpi börnunum að þroskast. Hún segir kennarastéttina vera frábæra, telur sig heppna að hennar hlutverk sé fjölbreytt og að hún sé fyrirmynd.

„Líðan og félagsleg staða einstaklinga er í dag þáttur sem spilar veigamikið hlutverk í samfélaginu okkar. Ég tel að skólasamfélagið í heild hafi gífurlega miklar áhyggjur af þessum vanda sem virðist stækka. Þessir þættir hafa verið rannsakaðir töluvert í gegnum tíðina. Niðurstaða margra kannanna sýna að nú er staðan verri en oft áður. Í grunnin tel ég málþroska og orðaskilning vera einn þátt í þessum vanda. Ef við náum ekki að tjá okkur þá getum við ekki sagt hvernig okkur líður og þá förum við oft að haga okkur illa. Þá eru einnig margir þættir sem spila inn í heildarmyndina eins og lítil samvera, samfélagsmiðlar, netnotkun og fleira. En markmið mitt hér er ekki að fjalla um rannsóknir og ástæður heldur frekar hugmyndir og hugleiðingar af lausnum á þessari stöðu.

Ég hef nefnilega líka áhyggjur, því þó við kennarar séum sérfræðingar á okkar sviði, lausnamiðaðir og séum góðir í að laga okkur að aðstæðum þá getum við ekki einir og sér leyst þann vanda sem hér um ræðir. Skólasamfélagið þarf sérfræðinga sem vinna saman að því markmiði að styðja við börnin okkar, framtíðinni. Að börnunum okkar líði sem allra allra best og þá tel ég að í framhaldi muni allt ganga mikið betur eins og til dæmis nám þeirra. Skólasamfélagið er oftast fljótt að koma auga á og vinna með hvern og einn einstakling, en okkur vantar oft bjargir, aðra sérfræðinga sem styðja við barnið, fjölskyldur þess og okkur í skólasamfélaginu,“ heldur Dagný áfram.

Hún segir að sérfræðingarnir eigi að vera hluti af teyminu, ekki að standa fyrir utan það. Þannig væri hægt að grípa fyrr inn í þegar eitthvað bjátar á. Það sé ekki hægt að setja á stopp og bíða í mánuði eða ár því börnin séu það mikilvægasta sem við eigum. Það þurfi að vera mannskapur til þess.

„Það væri óskandi að skólakerfið væri ekki tengt við pólitík og ákvarðanir ættu ekki að vera geðþóttaákvörðun þeirra sem stjórna hverju sinni. Eru sveitafélögin að ráða við þessa ábyrgð eða ættu þau ekki að bera hana? Er ábyrgð ríkisins ekki nein eða finnst þeim sem þar stjórna eðlilegt að börnum sé oft mismunað eftir til dæmis búsetu? Börn eiga rétt og þann rétt er auðvelt að setja á blað en oft á tíðum erfitt að framfylgja eða hvað? Draumur minn sem kennara er að starfi mínu og skólaumhverfinu væri sýnd virðing af öllum í samfélaginu okkar.

Ég ætla að halda áfram vera kennari sem hef trú á nemendum mínum og trúa því að þeim séu allir vegir færir. En að því sögðu vona ég sannarlega að þeir sem stjórna sjái til þess að ég og aðrir í skólasamfélaginu getum unnið vinnuna okkar. Það er nefnilega þannig að í þorpinu þurfum við öll að standa saman. Tíminn er dýrmætur,“ skrifar kennarinn að lokum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -