Allir borgarfulltrúar utan VG og Sósíalista kusu á fimmtudaginn gegn því að borgin myndi reyna að draga úr umferð einkaþotna og þyrlna í einkaerindum um Reykjavíkurflugvöll. VG lögðu fram tillöguna.
Undanfarna mánuði hefur sú umferð verið gagnrýnd frá ýmsum hliðum. Mannlíf greindi til dæmis frá því í sumar að leiguplássið væri hlægilega ódýrt þó það væri fyrir velstætt fólk. Í raun er dýrara að leggja bíl í miðbænum en einkaþotu. Svo er allt áreitið og mengunin sem fylgir þotunum.
Í frétt RÚV um málið er greint frá því að helst ástæða þess að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi kosið gegn tillögunni sú að hann vonist til að þetta leysist með öðrum leiðum. Hann vísaði í samkomulag milli ríkis og borgar um að innviðaráðuneytið og Isavia, skyldu hafa forgöngu um að finna kennslu- og einkaflugi annan stað í nágrenni borgarinnar.
Það þokast lítið áfram en samkomulagið er orðið tíu ára. Nýjustu fréttir af því eru að enn er beðið eftir niðurstöðu rannsókna í Hvassahrauni. Miðað við seinaganginn á því þá mega íbúar í nágrenni við Reykjavíkurflugvöll búast við áreiti næstu árin.