Veitingastaðurinn Osushi hefur verið rekinn í 19 ár af systkinunum Önnu og Kristjáni Þorsteinsbörnum en nú hafa tekið við rekstrinum í Tryggvagötu hjónin Davíð Tho og Rósa Huong ásamt fjölskyldu þeirra.
Davíð og Rósa hafa unnið á Osushi síðastliðin 15 ár og þekkja reksturinn í þaula. Dætur þeirra og vinir hafa einnig starfað á Osushi í gegnum tíðina.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Osushi geta góðu fastakúnnarnir áfram reitt sig á gamla, góða sushi grunninn en jafnframt átt von á nýungum.
Anna og Kristján koma til með að reka áfram Osushi að Reykjavíkurvegi 60 í Hafnarfirði.