„Hægrimenn hafa óskaplega gaman af því að vitna í Margréti Thatcher sem einhvern tímann mun hafa sagt að gallinn við sósíalisma væri að á endanum verði maður uppiskroppa með annarra manna peninga til að sólunda.“ Þannig hefst pistill sr. Davíðs Þórs Jónssonar, frambjóðanda Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem birtist á Vísi í dag.
Í pistlinum skýtur séra Davíð Þór bylmingsföstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn, Morgunblaðið og auðvaldið. Hann heldur áfram:
„Þetta lýsir alveg einstaklega skaðlegu viðhorfi til þess hvernig umgangast beri sameiginlega sjóði landsmanna. Sameiginlegir sjóðir landsmanna eru ekki „annarra manna peningar“. Þeir eru peningar okkar allra. Þeim ber að verja í þágu okkar allra. Þrátt fyrir að þetta sé augljóst vex þeirri möntru jafnt og þétt fiskur um hrygg að „ríkisútgjöld“ séu einhver meinsemd í eðli sínu sem halda beri í algjöru lágmarki.“
Segir Davíð Þór í pistlinum að gríðarlegur auður hafi safnast á fárra hendur hér á landi og að þeim auð fylgi völd „til að mynda ógnarvald yfir atvinnuöryggi heilla byggðarlaga“.
Skýtur presturinn á Morgunblaðið sem rekið er með gríðarlegu tapi ár hvert:
„Í krafti þessa auðs hefur líka verið seilst til valda í fjölmiðlum til að komast yfir dagskrárvaldið sem því fylgir. Auðvaldinu er sama þótt það tapi stórfé á fjölmiðlum í sinni eigu, valdið sem það fær yfir umræðunni er hverrar krónu virði. Og umræðan fer allt of oft í það far sem auðvaldinu hentar.“
Davíð segir einnig að „hver sá sem tekur undir möntruna um hin illu „ríkisútgjöld“,“ sé talinn góður og gegn „og enginn spyr hvar eigi að skera niður í velferðarkerfi sem þegar liggur í ræmum eftir niðurskurðaræði stjórnvalda.“ Hins vegar sé sá sem talar um að stórauka ríkisútgjöld, yfirheyrður af spænska rannsóknarréttinum.
Presturinn segir Sósíalista hafa svörin á reiðum höndum:
„Við sósíalistar höfum á hinn bóginn svör á reiðum höndum varðandi það hvernig við viljum stækka sameiginlega sjóði okkar. Við viljum lækka skatta á lægstu tekjur og millitekjur en stórauka þá á það sem aflögufærastir eru. Við tölum fyrir auðlegðarskatti sem leggjast mun á ríkasta 1% landsmanna. Spyrjum þá sem eru andvígir því hverjum þeir séu eiginlega að þjóna, almenningi eða auðvaldinu. Við tölum fyrir framfærsluviðmiði sem lægstu laun og bætur skuli aldrei fara niður fyrir. Við tölum fyrir því að fjármagnstekjur séu skattlagðar eins og hverjar aðrar tekjur (með sams konar frítekjumarki). Við tölum fyrir þrepaskiptum eignaskatti með eðlilegu frí-eignamarki og hækkandi álagi eftir því sem eignirnar verða fleiri og stærri. Og loks tölum við fyrir því að arðurinn af sameiginlegum auðlindum okkar, gæðum lands og sjávar, renni í sameiginlega sjóði okkar en ekki í vasa þeirra ríkustu.“
Davíð heldur áfram:
„Undanfarna áratugi hafa stjórnvöld grímulaust gengið erinda auðvaldsins gagnvart almenningi. Skattar hafa lækkað á hæstu tekjur en stóraukist á þær lægstu með þeim afleiðingum að í Reykjavík alast 10.000 börn upp í fátækt, tæp 20% níu ára barna hafa reynslu af því að fara svöng í rúmið af því að það var ekki til matur á heimilinu og 15.000 eldri borgarar hafa um 100.000 krónum minna á mánuði en lágmarkslaun til ráðstöfunar til að halda sér á lífi.
Þessu verður að breyta.“
Davíð segir greinilegt að auðvaldið sé með ríkisvaldið í rassvasanum og nefnir skýrt dæmi um slíkt:
„Efist einhver um að ríkisvaldið sé í rassvasanum á auðvaldinu skulum við rifja upp viðbrögð þáverandi sjávarútvegsráðherra þegar upp komst um stórfelldar mútur Samherja í Namibíu. Þá hringdi hann ekki í namibísk stjórnvöld til að bjóða aðstoð íslenskra stjórnvalda við að upplýsa málið. Nei, hann hringdi í vin sinn hjá Samherja, þar sem hann sjálfur hafði gegnt stöðu stjórnarformanns, og spurði hvernig honum liði. Stjórnsýslulegt vanhæfi hans til að gegna embættinu vegna vinatengsla og skýrra hagsmunaárekstra er augljóslega hafið yfir allan vafa. En auðvaldið sér það hvorki né skilur.“
Í lokakafla pistilsins hæðist séra Davíð Þór að Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra og kökuskreytingarmann:
„Bjarni Benediktsson lét einhvern tímann hafa það eftir sér að kakan væri ekki nógu stór og greip þar til myndlíkingar úr eftirlætis áhugamáli sínu; kökuskreytingum. Bakarinn veit hins vegar að ef kakan er ekki nógu stór til að allir fái nóg þá bakar maður aðra stærri. Hagsýna húsmóðirin áttar sig hins vegar á því að kakan er alveg nógu stór, henni er bara skipt með ranglátum hætti.“
Segir hann Sósíalista vilja baka nægilega stóra köku svo allir geti fengið sér nóg og vilja byggja aftur upp öflugt velferðarkerfi „eftir skemmdarverka- og eyðileggingastarfsemi stjórnvalda sl. 30 ár“, með því að stórauka fjármagnið sem varið er úr sameiginlegum sjóðum okkar. „Við teljum sameiginlegum fjármunum okkar allra betur varið í það en í að múta Namibíumönnum. Ríkisvaldið á að þjóna almenningi gagnvart auðvaldinu, ekki öfugt eins og nú er.“
Hér má lesa pistilinn í heild sinni.