Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf sex í gærkvöldi vegna innbrots. Átti atvikið sér stað í Garðabæ en brotist hafði verið inn í geymslu fjölbýlishúss þar sem verkfærum og öðrum verðmætum var stolið. Síðar um nóttina barst lögreglu tilkynning um annað innbrot í fyrirtæki í Hafnarfirði.
Kona kastaðist af hestbaki í árbæjarhverfi í gærkvöldi. Sjúkrabíll flutti konuna á bráðadeild en fann hún til í hálsinum eftir fallið.
Óvanalegt umferðaróhapp átti sér stað í Ártúnsbrekku í gærkvöldi þegar dekk losnaði undan bíl. Felguboltinn sem losnaði þegar dekkið fór undan bílnum skall á framrúðu bifreiðar sem varð til þess að rúðan brotnaði. Dekkið skoppaði áfram niður Ártúnsbrekkuna, án þess að lenda á annarri bifreið. Vaka fjarlægði bílinn og ökumenn fylltu út tjónstilkynningu.
Lögregla stöðvaði bifreið á Suðurlandsvegi klukkan hálf fjögur í nótt. Mennirnir eru grunaðir um að hafa skipst á sætum þegar lögregla stöðvaði bílinn en eru þeir báðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir gistu í fangaklefa lögreglu.