Frægasti köttur Íslands, Diego er fundinn og á leið í faðm fjölskyldu sinnar.
Kötturinn Diego, sem stolið var í fyrradag úr versluninni A4 í Skeifunni en Diego hefur vanið komur sínar þangað og í Hagkaup í Skeifunni en þar á hann sitt eigið bæli. Sást til manneskju taka Diego og fara með hann í strætisvagn og svo aftur úr honum við Bíó Paradís.
Mikil leit hófst strax í kjölfarið en auk fjölskyldu Diego, tók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og samtökin Dýrfinna þátt í leitinni auk annarra sjálfboðaliða.
Í samtali við Mannlíf greindi sjálfboðaliði Dýrfinnu frá því að Diego að væri fundinn og á leið heim til fjölskyldunnar. Samkvæmt honum fannste Diego í heimahúsi nærri Hverfisgötu.