Á mánudaginn mun héraðsdómur Reykjaness kveða upp dóm í máli Kolbeins Sigþórssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í knattspyrnu. Er hann ákærður fyrir gróft kynferðisbrot gegn barnungri stúlku.
Sjá einnig: Mannlíf birtir ákæruna á hendur Kolbeini – Á yfir höfði sér eins til 16 ára fangelsisdóm
Það var í lok janúar sem málið gegn Kolbeini var þingfest en aðalmeðferð þess tók einn dag. Fór hún fram um miðjan maímánuð en Kolbeinn tjáði sig um sakarefnið í gegnum fjarfundabúnað. Samkvæmt RÚV er ástæðan fyrir því að Kolbeinn hafi ekki mætt sjálfur í réttinn sú, að fjölmiðlar hafi komist á snoðir um ákæruna og þá hvenær aðalmeðferðin færi fram.
Í aðalmeðferðinni neitaði Kolbeinn sök.
Er fyrrverandi knattspyrnustjörnunni gefið að sök að hafa brotið gróflega á stúlkunni í júní 2022 en saksóknari sagði í ákærunni að hann hafi nýtt yfirburði sína yfir henni. Lágmarksrefsins fyrir samskonar brot er eins ár fangelsi en hámarksrefsins 16 ár. Móðir stúlkunnar krefst þess, fyrir hönd dóttur sinnar, að Kolbeinn greiði henni þrjár milljónir króna í miskabætur.
RÚV hefur heimildir fyrir því frá héraðsdómi um að dómurinn hafi verið fjölskypaður en slíkt er undantekning í samskonar málum. Var dómurinn skipaður tveimur embættisdómurum og sálfræðingi.