Kona sem varð sex ára syni sínum að bana hlaut 18 ára fangelsisdóm í morgun.
Samkvæmt upplýsingum RÚV frá héraðssaksóknara verður dómurinn birtur á morgun en fyrirtaka málsins var lokuð fyrir fjölmiðlum.
Það var í lok janúar á þessu ári sem drengurinn fannst látinn á heimili fjölskyldunnar í Kópavogi en þar bjó hann ásamt móður sinni og 11 ára bróður.
Er konunni gefið að sök að hafa komið að syni sínum sofandi í sófa og sett kodda yfir andlit hans. Hafi hún svo þrýst með báðum höndum yfir vit hans auk þess sem hún þrýsti á háls hans. Linaði hún ekki tökin fyrr en hún var viss um að hann væri látinn. Því næst hafi hún farið inn í svefnherbergi eldri sonar síns sem lá sofandi á maganum í rúmi sínu, tekið fyrir vit hans með annarri hendi og hnakkann með hinni og því næst þrýst andliti hans niður í rúmið svo að hann náði ekki andanum. Vaknaði hins vegar pilturinn við atlöguna og náði að losa sig og flýja heimilið.