Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands er dugleg að birta ljósmyndir af sér með þjóðarleiðtogum á Instagram. Virðist demantsdrottningin ansi vinamörg.
Þannig hefur hún birt ljósmyndir af sér með Karli III Bretlandskonungi, Jiang Zemin, fyrrum forseta Kína sem lést á dögunum og fjölmörgum fleirum. Í nýjustu færslu sinni birti hún mynd af sér með Elizabeth Truss sem sagði af sér forsætisráðherrastól Bretlands einungis 45 dögum eftir að hún tók við völdum en það er skammlífasti valdatími forsætisráðherra í sögu Bretlands. Truss er afar hlynnt brauðmolakenningu nýfrjálshyggjunnar en var gerð afturreka með umdeildar efnahagsaðgerðir, sem hún boðaði, en þær mældust sögulega illa fyrir í Bretlandi. Sagði hún af sér í kjölfarið.
Við ljósmyndina skrifaði kona nokkur eftirfarandi spurningu til Dorritar: „Ýtti þessi kona okkur ekki langt aftur í tímann?“
Dorrit svaraði um hæl: „Mjög rangt! Stefnumál hennar voru frábær, sannur íhaldsmaður! Innan árs hefði Bretland aftur orðið besta landið til að búa í! En strákarnir urðu afbrýðisamir.“