Auður Magndís Auðardóttir, doktor í menntavísindum og lektor við Háskóla Íslands, hefur fengið nóg af virðingarleysi borgaryfirvalda í garð gangandi og hjólandi vegfarenda. Hún bendir á að nú þegar stórframkvæmdir fara fram við Ánanaust eru allar gönguleiðir hennar lokaðar til að komast í Bónus eða Krónuna.
Auður Magndís birtir mynd á Twitter þar sem hún tjáir sig um ástandið:
„Göngustígur lokaður báðum megin við Ánanaust. Til að ganga í Bónus eða strætó á Granda er fólki bent á að fara stóran hring í kringum skólphreinsistöðina og Sorpu. Á meðan eru 4 akreinar opnar fyrir bíla. #aðförin,“ segir Auður og bætir við:
„Ég held reyndar að göngustígurinn á bakvið Sorpu sé líka lokaður vegna framkvæmda. Ég er í svona 15% vinnu við að senda ábendingar um sambærileg mál. Og jújú það virkar alveg stundum en væri bara fínt ef borgin myndi bara virka fyrir gangandi og hjólandi.„