Drífa Snædal telur að dagurinn í dag verði upphafið að endalokum feðraveldisins.
Talskona Stígamóta, Drífa Snædal er afar bjartsýn með daginn í dag. Í gær skrifaði hún Facebook-færslu þar sem hún segir frá því að hún hafi farið í fjögur viðtöl við erlenda fjölmiðla vegna Kvennaverkfallsins í dag. „Það segir mér að það er allt að verða vitlaust og heimurinn mun fylgjast með okkur á morgun,“ skrifaði hún og hélt áfram: „Það er sjaldgæft að hafa svona sterka tilfinningu fyrir sögulegri stund í aðdragandanum. Morgundagurinn verður upphafið að endalokum feðraveldisins!“