Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Ebba Sig varð fyrir þolendaskömmun frá lögreglu: „Spurð hversu stuttur kjóllinn minn hefði verið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Árið 2010 var mér nauðgað, og ég geri í raun allt sem ég á að gera. Ég fer með vinkonu minni upp á neyðarmóttöku, það er tekið vel á móti mér þar. Tekið sýni, eða reynt að taka sýni. Það er gerð grein fyrir einhverjum áverkum. Síðan fór ég í skýrslatöku.

Þetta var um páska þannig að þetta var varalögreglumaður sem tók viðtal við mig. Hann trúði mér og maðurinn var handtekinn strax. Svo beið ég í einhvern mánuð og þá var ég kölluð aftur í skýrslutöku og svo var ég kölluð aftur í skýrslutöku því þá „bilaði myndavélin.“

Svona hljómar frásögn Þuríðar Elínar Sigurðardóttur af sárri reynslu sinni af kynferðisofbeldi. Þuríður, sem betur er þekkt sem Ebba Sig, sagði frá ofbeldinu og því slæma viðmóti sem hún fékk frá lögreglu, í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur.

Ebba hefur tvisvar sinnum orðið fyrir nauðgun, fyrst árið 2010 og í seinna skiptið árið 2018.

Þar var komið fram við mig eins og ég væri að ljúga. Maður vonar svo mikið að þetta sé búið að breytast. Ég var bara spurð hvað ég hefði verið búin að drekka mikið, hvort ég hefði verið búin að kyssa hann, hversu stuttur var kjóllinn minn eða pilsið mitt hefði verið,“ segir Ebba um þriðju skýrslutökuna sem hún var kölluð í eftir nauðgunina sem hún varð fyrir árið 2010.

Á þeim tíma var Ebba nítján ára gömul, að verða tvítug.

- Auglýsing -

Hún segir frá því að í þessari þriðju skýrslutöku hafi lögreglumaðurinn gefið í skyn að hún væri að ljúga og að þetta væri hennar sök.

„Það voru skoðaðar myndavélar á Prikinu og einhvers staðar á Lækjartorgi þar sem sést að ég stend ekki í lappirnar. Það var tekið blóðsýni úr mér þá og alkóhólmagnið sem var í mér var rosalega hátt. Og þá var nýbúið að breyta lögunum að manneskja sem er undir svona miklum áhrifum er ekki fær um að veita samþykki,“ segir Ebba.

Mál Ebbu fór til saksóknara á sínum tíma, sem ákvað að fara ekki lengra með málið vegna skorts á sönnunargögnum. Sú þolendaskömmun sem Ebba upplifði, meðal annars frá lögreglu, sem og áfallið við að málið hafi verið fellt niður, átti stóran þátt í ákvarðanatöku Ebbu varðandi hvort hún ætti að kæra eða ekki, þegar hún varð fyrir hópnauðgun árið 2018.

- Auglýsing -

Þá hafði hún verið með vinum sínum niðri í bæ og hafði drukkið tvo til þrjá bjóra, en að eigin sögn er það ekki mikið magn fyrir Ebbu. Um kvöldið hafi hún hitt stráka.

„Svo bara verð ég ógeðslega skrýtin og verð einhvern veginn hömlulaus og finn að það er eitthvað skrýtið í gangi, ég er að fara í leigubíl og það átti að skutla mér heim. Svo bara man ég ekkert eftir nema nokkrum brotum af hlutum. Þetta voru strákar frá Kanada, ég man þá bara eftir brot og broti af því sem gerðist. En man að gerendurnir voru þrír og tveir að halda mér og horfa á,“ segir Ebba.

Þegar Ebba rankaði við sér áttaði hún sig á því að eitthvað hafði gerst. Hún hringdi strax í vinkonu sína sem kom og náði í Ebbu þar sem hún var stödd.

„Ég vakna ber að neðan í einhverju AirBnB húsi. Við förum upp á neyðarmóttöku og það tekur á móti mér rosalega frábær hjúkrunarfræðingur. En þá lendir maður aftur svona í kerfinu, það var enginn kvensjúkdómalæknir á staðnum. Klukkan var eitthvað hálf níu um morguninn og hjúkrunarfræðingurinn segir mér að kvensjúkdómalæknirinn komi klukkan eitt,“ segir Ebba.

Á þessum tímapunkti langaði Ebbu ekkert meira en að fara undir sæng og gráta. Hún segir að miðað við hvernig fyrra málið hafi farið hafi Ebba ekki séð ástæðu til þess að leggja á sig að ganga í gegnum það allt aftur.

Frásögn Ebbu í heild sinni má nálgast á Patreon-síðu Eigin Kvenna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -