Edda Björgvinsdóttir vill að þjóðin fái meiri arð af auðlindunum en hún fær nú.
Leikkonan ástsæla, Edda Björgvinsdóttir skrifaði færslu á Facebook á dögunum þar sem hún telur upp allt það sem hægt væri að byggja ef arðurinn af auðlindum þjóðarinnar „rynni ekki að mestu til fárra auðmanna.“
„Við gætum byggt skóla, spítala, göng, leikhús, fótboltavelli, bókasöfn, klifurgarða, sundlaugar, brýr og fullt fleira fyrir arðinn af auðlindunum okkar, ef hann rynni ekki að mestu til fárra auðmanna.
Orð Eddu hittu aldeilis landann í hjartastað en færslunni hefur verið deilt 527 sinnum þegar þessi frétt er rituð og fjölmargir hafa tjáð sig í athugasemdum. Þar á meðal tónlistarmaðurinn Svavar Knútur:
„Laukrétt elsku vinkona! En þrælslundin er innbyggð í tungumál okkar og menningu. 600 ár af undirokun, ekki af Dönum, heldur einmitt samlöndum okkar, hefur mótað ansi mörg okkar til að vera dauðhrædd og undirgefin við valdamikla menn. Og egóið breytir því svo í að “standa vörð um athafnafrelsi, dugnað og einstaklingsframtak”. Sem hefur afskaplega takmarkað að gera með auð þessa forréttindahóps.“