„Karlmennskuspjallið er hópur á Facebook þar sem fer fram svæsin og óvægin hatursorðræða gegn konum og þar hæðast menn að reynslusögum þolenda kynferðisofbeldis.
Hvernig er þetta ekki lögreglumál? menn koma þarna undir nafni, halló! JAILTIME,“ segir Edda Falak á Twitter í dag.
Þarna vísar Edda til þeirrar menningar sem sögð er þrífast á Karlmennskuspjallinu á Facebook.
Hópurinn telur um 700 karlmenn, en þar hæðast þeir meðal annars að þolendum kynferðisofbeldis og gera lítið úr konum almennt.
Margir karlmenn í hópnum virðast trúa því að femínismi og kvenréttindabarátta sé af hinu illa, ef marka má tilvitnanir og skjáskot úr hópnum.
Hörður nokkur skrifar athugasemd við færslu Eddu og segir að fólk hafi fengið meiðyrðaákærur fyrir minna.
Aron sér hins vegar leik á borði:
„Ú nýr staður til að leika sér að fuckast í vitleysingum.“
„Dj …eru þetta mikil lítilmenni og viðbjóðsleg eintök. Hrottar eru víða,“ segir Ingibjörg.