Öllu starfsfólki Eflingar hefur verið sagt upp. Partur af skipulagsbreytingum.
Samkvæmt Vísi lagði Sólveig Anna Jónsdóttir, sem nýverið tók aftur við formennsku Eflingar, til á stjórnarfundi félagsins í dag að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Var tillagan samþykkt af átta manna meirihluta B-lista undir forystu Sólveigar Önnu.
Herma heimildir Vísis að uppsagnirnar séu hluti af breytingartillögu til stjórnar um viðamiklar skipulags- og rekstrarbreytingar á skrifstofu Eflingar. Felur tillagan í sér breytingar á ráðningarkjörum allra starfsmanna. Fyrirhugað er því að segja öllum starfsmönnum Eflingar upp störfum og munu uppsagnirnar að taka gildi um næstu mánaðamót. Verða öll störf auglýst og verður þess krafist að starfsmenn vinni uppsagnarfrestinn.