- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] Þótt myndin sé óskýr má ætla að einhverjir geti borið kennsl á manninn.