Egill Sigurðsson, bóndi og fyrrverandi oddviti Ásahrepps er látinn. Lést hann á Landspítalanum sunnudaginn 11. febrúar síðastliðinn en Egill var 64 ára.
Egill fæddist þann 2. júní árið 1959 á Stokkalæk á Rangárvöllum. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Egilsson, bóndi á Stokkalæk og Kristín Jóhannesdóttir Oberman, húsmóðir.
Árið 1979 hóf Egill og eiginkona hans, Guðfríður Erla Traustadóttir, búskap á Berustöðum II í Ásahreppi en búskapinn byggðu þau upp frá grunni en mjólkurframleiðsa hafði þá legið niðri í um fimm ár á bænum. Í janúar á þessu ári brugðu hjónin búi og nýjir eigendur tóku við.
Egill var virkur í félagsstörfum um ævina, bæði í Ásahreppi og í hagsmunasamtökum bænda. Hann var varamaður í hreppsnefnd Ásahrepps 1995-1996 og var kjörinn fulltrúi 1998-2022 og oddviti um tíma. Þá var Hann formaður héraðsnefndar Rangárvallasýslu og félagi í Búnaðarfélagi Ásahrepps, Ungmennafélagi Ásahrepps og veiðifélaginu. Einnig sat ann í ýmsum nefndum fyrir hönd sveitarfélagsins gegnum árin og var endurskoðandi kirkjureikninga. Þá sat hann í stjórn Búnaðarsambands Suðurlands og var einn af stofnendum Félags kúabænda á Suðurlandi.
Lunkinn skákmaður var Egill en hann var virkur félagi í Taflfélagi Rangæinga á sínum yngri árum og varð eitt sinn meistai félagsins.
Egill lætur eftir sig eiginkonuna, Guðfríði Erlu Traustadóttur og börnin Andra Leó, Signýju og Eygló Kristínu. Þá eru barnabörnin sex talsins.
Útför Egils fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 23. febrúar klukkan 13.
Morgunblaðið sagði frá andlátinu.