Egill Helgason gefur nýrri ríkisstjórn ráð fyrir komandi kjörtímabil.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann gefur væntanlegri ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins ráð. Finnst Agli, sem lengi stjórnaði pólitíska spjallþættinum Silfur Egils í Ríkisútvarpinu, gæfulegast fyrir þær Kristrúnu, Þorgerði Katrínu og Ingu að einblína á önnur mikilvægari mál en inngöngu í Evrópusambandið. Hér má lesa færsluna:
„Ef ég ætti að ráðleggja nýrri ríkisstjórn SCF eitthvað, þá er það að láta Evrópumálin alveg vera og sætta sig við ríkjandi ástand í þeim. Deilur um Evrópu yrðu erfiðar og tímafrekar, betra að einbeita sér að heilbrigðis-, velferðar- og húsnæðismálum þar sem skórinn kreppir verulega. Háleit markmið eru góð, en þau mega ekki vera of mörg og flókin – það er lærdómur frá Jóhönnustjórninni um árið.“