Samfélagsrýnirinn Egill Helgason hefur áhyggjur af sögukennslu á Íslandi og setur hann það í samhengi við að 80 ár eru liðin frá frelsun fanga í Auschwitz.
„Ég sé talað um að við höfum ekki sýnt næga ræktarsemi við að minnast Helfararinnar í tilefni af því að 80 ár eru liðin frá frelsun fanga í Auschwitz. Ég held samt að það skipti ekki miklu máli hvort íslenskir ráðamenn ferðist þangað eða ekki. Slíkra hryllingsatburða minnumst við best með því fræða fólk um þá og þá kemur að stöðu sögukennslu í skólum. Kennsla í sögu hefur víðast verið dregin stórlega saman og nú heyrir hún oft undir félagsfræði í grunn- og framhaldsskólum. Sonur minn kvartaði undan því að fá ekki að læra meiri sögu. Þekking á sögu er liður í góðri almennri menntun og hún er nauðsynleg til að skilja heiminn – og þar á meðal skelfingaratburði eins og Helförina sem mega ekki endurtaka sig í neinni mynd,“ skrifar Egill á samfélagsmiðla um málið.
Blossaði upp áhugi
Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, segir í athugasemdakerfi Egils að sér þykir leitt ef sögukennsla hafi minnkað í skólakerfinu.
„Tók alla þá söguáfanga sem að í boði voru á mínum framhaldsskólaárum í FSu. Sat fimm slíka hjá frábærum kennurum. Þá leitaði hugurinn reyndar í allt aðra átt hvað varðaði framtíðarnám og störf en hann svo síðar gerði. Eiginlega algjörlega í hina áttina. Þori varla að segja það hér hvert hugur minn stefndi á þeim árum innan um ykkur fjölmiðlafólkið. Stefndi s.s. að því að gera blaðamannastarf að ævistarfi.
Fór svo í byggingarvinnu eftir stúdent, fékk áhuga á því hvað lægi að baki þessum teikningum sem maður var að vinna eftir. Þá blossaði skyndilega upp aftur áhugi á raungreinum sem ég hafði misst áhugann á e-um árum á undan. Annars leitt ef ekki er lögð nein áhersla á/eða að í boði séu söguáfangar í framhaldsskólum í dag. Eiginlega alveg ótækt.“
Flestir virðast vera á sama máli og Egill en fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson sló þó á létta strengi.
„Einhverju verður að fórna fyrir kynjafræðina sem þarf sitt pláss,“ skrifaði blaðamaðurinn reyndi.