Egill Helgason minnist Vestur-Íslendingsins Roy Guðmundssonar sem lést á dögunum.
Egill birti myndskeið sem sýnir er hann heimsótti Roy í þætti sínum Vesturfarar en hann lét afar vel af Roy.
„Þau týna tölunni eitt af öðru það góða fólk sem ég ræddi við í þáttunum Vesturfarar. Ég prísa mig sælan að hafa verið á ferðinni í Íslendingabyggðunum vestra fyrir tæpum tíu árum. Nú er látinn öðlingurinn Roy Guðmundsson. Hann var frá Riverton, út byggðarlagi sem hefur löngum verið frægt fyrir blómlega tónlistarmenningu. Roy var glæsilegur fulltrúi þessarar hefðar auk þess að vera bóndi og fiskimaður. Mér hefur fundist þessi sena vera einn hápunktur þáttanna,“ skrifaði Egill.
Hér má sjá atriðið með Roy.