Háværar umræður hafa skapast í íþróttasamfélaginu undanfarnar vikur um þátttöku Víkings í Evrópukeppni í fótbolta. Ástæðan er sú að mögulegt er að liðið spili þá heimaleiki sem framundan eru erlendis vegna þess að enginn íslenskur knattspyrnuvöllur, fyrir utan Laugardalsvöll, stenst þær kröfur sem UEFA setur. Ekki verður þó hægt að spila leikinn á Laugardalsvöllinn þar sem verður farið í framkvæmdir á honum því tímabili sem Víkingur spilar heimaleiki sína.
Mögulegt er að hægt verði að keppa á heimavölli Breiðabliks en til þess að slíkt gangi eftir þarf að leigja ljósabúnað sem gæti kostað allt að 50 milljónum króna. Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, hefur sagt að félagið hafi ekki efni á því en félagið vill að íslenska ríkið og Reykjavíkurborg borgi brúsann. Rétt er taka fram að félagið fær mörg hundruð milljónir í kassann fyrir þátttöku sína í þessari keppni.
Því spyr Mannlíf lesendur sína: Eiga stjórnvöld að taka þátt í kostnaði Víkings í Evrópukeppni í fótbolta?
Könnun þessari lýkur klukkan 12:00 föstudaginn 20. september.