Athafnamaðurinn Einar Bárðarson fagnar í dag nokkuð sérstöku edrúafmæli. Hann segist í dag, 1. desember, ekki hafa drukkið áfengi í 1944 daga. Einar skrifar á Facebook:
„Í dag 1. desember, á FULL-veldisdaginn okkar. Þá eru 1944 dagar, hahaha ég sver það, síðan ég drakk síðast áfengi. Ætlaði mér nú bara að vera edrú eina Verslunarmannahelgi en svo hefur það dregist á langinn.“
Hann bætir svo við þetta: „Hef svo heldur ekkert verið að blanda öðrum í þetta en þessi tölulega tilviljun fannst mér skemmtileg og ákvað að deila þessu með ykkur. Aðal atriðið er að vera sáttur við sjálfan sig taka ábyrgð á eigin lífi.“