- Auglýsing -
Það er óhætt að segja að auglýsing sem er sögð hafa birst í nýjasta tölublaði Bændablaðsins hafi slegið í gegn innan Facebook-hópsins Fyndnir frændur.
Það er svo sem engin furða enda er auglýsing kostuleg og minnir allmikið á gamla tíma. Auglýsingin birtist undir dálknum Einkamál og hljóðar svo:
„Ertu stórbóndi á Suðurlandi? Áttu dóttir sem gengur ekki út? Handlaginn smiður úr Hafnarfirði á þrítugsaldri leitar eftir kynnum við kampakáta bóndadóttur. Áhugasamir hafi samband í [email protected], gaman ef mynd fylgir.“