Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um einn eiturhressan er olli samborgurnum ónæði með lélegri og háværri tónlist á almannafæri í hverfi 101. Lögreglan var snör í snúningum og drap í gleði þess hressa. Honum var gert að láta af tónleikahaldi sínu.
Þá var þjófnaður framinn í það minnsta þremur hverfum, póstnúmeri 101, 108 og 210. Náði lögregla að hafa hendur í hári miðbæjarþjófsins en hin voru afgreidd með vettvangsskýrslu.
Lögreglumenn báru kennsl á stolna bifreið í hverfi Hlíða- og/eða Laugarness. Viðeigandi ráðstafanir voru gerðar.
Þrír ökumenn voru handteknir í Árbæ grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einn þeirra reyndist hafa misst ökuréttindin einhverju áður og annar reyndist aldrei hafa öðlast þau nauðsynlegu réttindi sem þarf til að aka bifreið. Hefðbundið ferli og lausir að blóðsýnatöku lokinni.
Tilkynning barst vegna rafhlaupahjólaslys í hverfi 105. Einn var fluttur slasaður á slysadeild til frekari aðhlynningar. Ekki er vitað um frekari líðan hins slasaða.