- Auglýsing -
Lögreglan á Vesturlandi sendi frá sér tilkynningu um alvarlegt umferðarslys sem gerðist í gær.
„Alvarlegt umferðarslys var tilkynnt lögreglu miðvikudaginn 13. desember á Vesturlandsvegi móts við Skipanes. Þar hafði harður árekstur orðið milli tveggja bifreiða sem þrír aðilar voru í. Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir aðilar. Ökumaðurinn sem var einn á ferð lést. Ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru flutt til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar,“ segir í tilkynningunni.