Eiríkur Tómasson útgerðarmaður í Grindavík lést á Landspítalanum í Fossvoginum í fyrradag, sjötugur að aldri. Þetta tilkynnti eiginkona hans, Katrín Sigurðardóttir á Facebook í gær.
Eiríkur var forstjóri útgerðarfyrirtækisins Þorbjarnar hf. í áratugi en Þorbjörn keypti fyrirtækið Bakka hf í Bolungarvík árið 1997 og árið 2000 sameinuðust þau svo Fiskanesi í Grindavík og Valdimar í Vogum.
Eiríkur var vinamargur og bar af sér mikinn þokka. Einn vina hans, Guðni Ölversson minnist hans á Facebook. Þar sagði hann meðal annars: „Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Eiríki Tómassyni og allri hans nánustu fjölskyldu. Hvíl í friði kæri vinur. Minningarnar léttu og ljúfu lifa enn svo lengi sem ég dreg andann.“
Mannlíf sendir fjölskyldu og vinum Eiríks innilegar samúðarkveðjur.