Ys og þys var víðsvegar í borginni þetta fyrsta föstudagskvöld sumarsins og mátti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinna hinum ýmsu verkefnum.
Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynning hafi borist frá Suðurlandsvegi, en þar hafði vegfarandi orðið var við lífvana kött í vegkanti. Lögreglan sinnir því hlutverki að fjarlæga dáin dýr og koma á rétta stað. Við eftirgrennslan fannst meintur köttur sem í senn reyndist vera rifin úlpa í vegkantinum.
Verðbólgan virðist bíta mismikið en tilkynning barst um aðila að reyna stela hraðbanka í Hafnarfirði. Á vettvangi mátti sjá að búið var að binda reipi við aftari hluta bifreiðarinnar og í hraðbankann. Bifreiðin var mannlaus og málið í rannsókn.
Þá kemur einnig fram að hópur barna í vesturhluta borgarinnar höfðu ekið um á gröfu. Höfðu börnin lumað sér inn í vinnuvélina og ræst hana. Þegar lögreglan bar að garði voru börnin bak og burt en tilkynnanda hafði tekist að hræða þau á brott og þar með spornað við að stórslys yrði.
Hefðbundnari tilkynningar bárust einnig lögreglu þar á meðal vegna ölvunaraksturs, fíkniefnabrota, samkvæmishávaða og aðstoðarbeiðnir vegna ölvunarástands.