- Auglýsing -
Eldur logaði í strætóskýli við Eddufell á fjórða tímanum í dag. Vegfarandinn, Rútur Skæringur N. Sigurjónsson, sem átti leið um svæðið, náði myndum en svo virðist sem kveikt hafi verið í plexigleri skýlisins. Í samtali við Mannlíf greinir hann frá að slökkviliðinu hafi verið gert viðvart um eldinn og voru mættir nokkrum mínútum seinna.