Það var nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hún gerir grein fyrir ýmsum málum sínum í dagbók.
Nokkrir ökumenn fóru ekki eftir settum reglum og lögum
Ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var einnig án gildra ökuréttinda. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir í akstri grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Annar ökumaður var stöðvaður í akstri þar sem hann var að tala í farsíma við akstur. Í ljós kom að hann var einnig undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn og fluttur á lögreglustöð til sýnatöku.
Svo var einnig tilkynnt um innbrot í geymslur en nánari upplýsingar um það var ekki að fá hjá lögreglu.
Svo fékk lögreglan tilkynningu um eld á svölum þar sem kviknað hafði í út frá kerti. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eitthvað tjón varð á húsinu að utan.