Knattspyrnumaðurinn Máni Austmann og félagar hans í FH ákváðu að mæta í afmæli til 14 ára drengs sem upplifði það að allir bekkjarfélagar hans tóku sig saman um að mæta ekki í veisluna. Þegar Máni heyrði af hópskrópinu tók hann sig til og bauð afmælisdrengnum í lasertag.
Máni segir frá málinu í færslu á Twitter:
„Fékk þessi skilaboð frá móður 14 ára drengs sem ég er með í liðveislu. Hann ætlaði að halda upp á afmælið sitt en bekkjarfélagar hans ákváðu að hópskrópa í afmælið. Einelti er víða en við getum öll lagt okkar að mörkum, það getur þýtt meira en við áttum okkur á,” segir Máni.