Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu. Þar kemur fram að leit að Sigrúnu Arngrímdóttur, hélt áfram síðastliðinn laugardag, án árangurs.
Á laugardaginn var framhaldið leit að Sigrúnu Arngrímsdóttur, sem saknað hefur verið síðan helgina níunda til ellefta júní. Björgunarsveitir gengu fjörur á sunnanverðum Reykjanesskaga. Við leitina var notast við dróna. Leitaraðgerðir hófust snemma morguns og stóðu fram eftir degi. Leitaraðgerðir báru ekki árangur.
Upphaflega var lýst eftir Sigrúnu þann 13. júní síðastliðinn, eftir að tilkynning barst lögreglu um yfirgefna bifreið á bílastæði sunnan við Suðurstrandarveg, nærri Húshólma. Þrátt fyrir umfangsmiklar leitaraðgerðir björgunarsveita dagana eftir tilkynninguna, bar leit ekki árangur.
Lögregla ítrekar að ef einhver telur sig búa yfir upplýsingum um ferðir Sigrúnar að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299 eða Neyðarlínuna 112.