Á næstu dögum er búist við því að enn herði frostið. Til að spara heita vatnið hefur þremur sundlaugum á Suðurlandi verið lokað og gætu stórnotendur orðið fyrir barðinu á skerðingum á næstunni. Ekki hefur þurft að skerða heitt vatn til heimila enn sem komið er.
Veitur hvetja Íslendinga til að hita hús sín ekki of mikið. Til að fá sem besta nýtingu eiga ofnar að sjá um að finna rétta hitastigið og er best að stilla þá á þrjá. Ekki er ráðlagt að opna glugga og gott er athuga með þéttingar á gluggum og hurðum. Rúv greinir frá.
Sundlaugarnar á Hvolsvelli, Hellu og Laugalandi eru nú lokaðar til að spara heita vatnið. Á meðan kuldinn er sem mestur verða þær lokaðar og enn sem komið er nægur heitavatnsforði til að mæta húshitun en það gæti komið til skerðinga í einhvern tíma. Ef til skammtana á heitu vatni kemur er þó alltaf byrjað á stórnotendum.