Fangi fannst látinn í fangelsinu á Sogni í Ölfusi á fimmtudaginn síðastliðinn.
Samkvæmt mbl.is staðfestir Páll E. Winkel fangelsismálastjóri að fangi hafi fundist látinn á Sogni í síðustu viku. Ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan rannsakar þó málið eins og venjan er.
Hinn látni er maður á áttræðisaldri, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins en hann sat inni fyrir að verða bróður sínum að bana árið 2018, á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu. Lögreglan fann ummerki eftir átök á vettvangi og leiddi krufning í ljós að hinn þolandinn hafi látist vegna áverka. Árásarmaðurinn fékk sjö ára dóm í héraði en Landsréttur lengdi dóminn í 14 ár.