Farið hefur verið fram á gjaldþrotaskipti á hendur Viljans úgáfufélags, sem er í eigu Björns Inga Hrafnssonar, fjölmiðlamanns. Beiðnin verður tekin fyrir þann 11. mars, næstkomandi, hjá Héraðsdómi Vesturlands. Um er að ræða ógreidd lífeyrissjóðsgjöld.
Í október á síðasta ári var farið fram á gjaldþrotaskipti á hendur Viljans og nú virðist vera að málið sé að komast upp á yfirborðið á nýjan leik. Björn Ingi tjáði sig með einlægum hætti á sínum tíma um umrædd gjaldþrotaskipti og sagðist mikið brugðið. Þá fullyrti hann einnig að afturköllun beiðninnar hefði verið frágengin.
Björn Ingi skaut heldur betur upp kollinum í kjölfar Covid faraldursins og gaf út bókina Vörn gegn veiru, sem hann fjármagnaði eingöngu með styrktar- og auglýsingatekjum, að hans sögn.