Vörubíll lenti í óhappi á Reykjanesbrautinni með þeim afleiðingum að farmurinn eyðilagðist, rétt fyrir ellefu í morgun.
Umferðaróhapp varð á Reykjanesbrautinni rétt fyrir ellefu en svo virðist sem vörubíll hafi keyrt upp undir brú sem liggur að Smiðjuvegi með þeim afleiðingum að farmurinn eyðilagðist og dreifðist um götuna.
Mannlíf heyrði í Gunnari Hilmarssyni aðalvarðstjóra lögreglunnar á Dalveg í Kópavogi sem staðfesti að óhapp hefði orðið en sagðist ekki geta gefið frekari upplýsingar því hann hefði þær ekki. Hann sagði þó að lögreglan væri að vinna í málinu.
Mannlífi barst ljósmyndir frá vegfaranda sem sagðist halda að um skrifstofugám væri að ræða en var ekki viss.