- Auglýsing -
Ferðamaður sem fannst látinn í gær í heitri laug lést vegna veikinda.
Fréttir bárust í gær af slösuðum ferðmanni í heitri laug í Laugavalladal, 20 kílómetra norðan við Kárahnjúka. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslurnar til Egilsstaða til aðhlynningar. Samkvæmt RÚV í dag lést maðurinn á staðnum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið um að maðurinn hafi látist vegna veikinda. Ekki sé talið um að slys sé að ræða eða að laugin hafi verið of heit.