Lögregla handtók ökumann bifreiðar í Kópavogi í gærkvöldi vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Maðurinn hefur ítrekað ekið án ökuréttinda en var hann látinn laus að lokinni sýnatöku.
Lögregla stöðvaði bíl á Kringlumýrarbraut í gærkvöldi á 119 km hraða á klst en hámarkshraði þar er 80 km/klst. Maðurinn, sem var ekki með ökuskírteini meðferðis, neitaði sök. Síðar um kvöldið var önnur bifreið stöðvuð á svipuðum slóðum. Ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.
Lögreglu barst tilkynning um innbrot í apótek í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Lögreglumenn mættu á vettvang en engar frekari upplýsingar voru gefnar upp um málið. Þá voru afskipti höfð af konu í Kópavogi. Konan var stödd á heimili sínu þar sem lögregla lagði hald á fíkniefni.