Hræ af fimm hvolpum fundust í poka í Mosfellsbæ í dag.
Dagvaktin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en eftirfarandi mál komu þó upp.
Tilkynnt var um eingarspjöll og þjófnað úr verslun, til lögreglunnar á Hverfisgötu. Þá óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð eftir að farþegi gat ekki greitt fyrir umbeðinn akstur.
Einnig barst tilkynning um þjófnað á grilli í miðborginni.
Lögreglan sem annast tilkynningar í Kópavogi og í Breiðholti barst tilkynning um innbrot en ekki er vitað hvort einhverju og þá hverju var stolið.
Þá fundust hræ af fimm hvolpum í poka í Mosfellsbæ en Matvælastofnun var gert viðbart en grunur er um brot á lögum um velferð dýra.