Fimm manns gistu í fangaklefa lögreglunnar í nótt. Tilkynnt um mann að sparka í bíla í austurborginni. Ekkert var að sjá þegar lögregla kom á vettvang.
Búðarþjófur var staðinn að verki. Mál hans var afgreitt á vettvangi
Lögregla var kölluð til vegna líkamsárásar. Einn var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu. Fórnarlambið hlaut minniháttar meiðsli.
Líkamsárás og rán átti sér stað í Múlahverfi. Ofbeldismennirnifr voru farnir af vettvangi þegar lögreglan kom á vettvang. Þeir eru þó ekki sloppnir því lögreglan veit hverjir gerendurnir eru. Málið í rannsókn
Tilkynnt um umferðarslys í Hafnarfirði. Ökumaðurinn bar með sér að vera ölvaður. Hann var handtekinn og læstur inni í fangaklefa. Á sömu slóðum var tilkynnt um líkamsárás. Um minniháttar meiðsli var að ræða og málið afgreitt á vettvangi.
Ökumaður var stöðvaður í Breiðholti vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Dregið var úr honum blóð og hann látinn laus.
Meintur ofbeldismaður var handtekinn í Kópavogi og vistaður í fangageymslu, grunaður um líkamsáras. Um minniháttar meiðsli var að ræða.
Lögregla vaf kölluð til vegna líkamsárásar í Mosfellsbæ. Um minniháttar meiðsli var að ræða. Vitað er hver árásarmaðurinn er. Hann var farinn er lögreglan kom á vettvang
…