Það bætist í prestahópinn sem sækist eftir því að verða nýr biskup Íslands en Agnes M. Sigurðardóttir, núverandi biskup, lætur af embætti í vor eftir umdeilda setu.
Biskupskjör verður haldið í voru en um jólin tilkynntu þær séra Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju, og séra Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, að þær vildu verða biskup. Í dag staðfestu þau séra Ninna Sif Svavarsdóttir, sóknarprestur í Hveragerði, og séra Guðmundur Karl Brynjarsson, prestur í Lindakirkju í Kópavogi, í samtali við Morgunblaðið að þau muni sækjast eftir embættinu en til þess að eiga möguleika þurfa prestarnir fjórir að hljóta nægar tilnefningar. Mannlíf hafði greint frá fyrir áramót því að Guðmundur lægi undir feldi.
Í vor verður kosið um biskup með nýrri aðferð í fyrsta skipti. Þeir þrír einstaklingar sem hljóta flestar tilnefningar komast áfram í næstu umferð og verður svo kosið milli þeirra.