Það stefnir í áhugaverðan landsfund fyrir Sjálfstæðisflokkinn en eins og staðan er í dag stendur til að halda hann í lok febrúar. Þó vilja sumir innan flokksins fresta honum vegna þess að líklega verða mikil átök á fundinum og þá sérstaklega varðandi hver verður formaður flokksins að loknum landsfundi.
Mörg nöfn hafa verið nefnd í því samhengi og tók Mannlíf saman þau nöfn sem hafa oftast verið nefnd og spurði lesendur einfaldlega: Hver verður formaður Sjálfstæðisflokksins eftir landsfund?
Niðurstaðan er sú að Guðlaugur Þór virðist vera sá sem flestir halda að verði næsti formaður en athygli vekur að Guðrún Hafsteinsdóttir lenti öðru sæti og spurning hvort hún telji sig færa að sigra aðra mögulega frambjóðendur. Þá eru aðeins 11% sem telja að Bjarni haldi áfram sem formaður flokksins.