Samfylkingin, Píratar, Sósíalistaflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri græn í borgarstjórn Reykjavíkur hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf á nýjum grunni en þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum.
Eins og flestir þekkja sleit Einar Þorsteinsson borgarstjóri meirihlutasamstarfi Framsóknar, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata í síðustu viku og ætlaði hann að reyna mynda nýjan meirihluta þar sem Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og Flokkur fólksins væru við völd. Ekki er talið líklegt að slíkt sé í kortunum.
„Markmið okkar er að setja velferð og lífskjör allra Reykvíkinga í forgrunn.
Við ætlum að vanda vel til verka og munum upplýsa um gang mála eftir því sem vinnan þróast.“
Undir tilkynningu rita:
Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
Líf Magneudóttir, Vinstri græn
Dóra Björt Guðjónsdóttir, Píratar
Heiða Björg Hilmisdóttir, Samfylkingin
Helga Þórðardóttir, Flokkur fólksins