Fólk baðaði sig í Bláa lóninu í gær en náði ljósmyndari á vegum Vísis myndir af fólkinu. Lónið hefur verið lokað almenningi síðan 9.nóvember vegna hættu á eldgosi á svæðinu. Þá segir í frétt Vísis að ekki liggi fyrir hvaða einstaklingar hafi verið þar á ferð.
Lokun Bláa lónsins, Silica hótels og Retreat hótels er í gildi, samkvæmt heimasíðu Bláa lónsins, til 14.desember og staðan verði endurmetin þá. Neyðarstig almannavarna hefur verið á svæðinu í nokkrar vikur en því var nýverið breytt í hættustig. Þá er unnið hörðum höndum að því að laga sprungur og skemmdir sem mynduðust í skjálftunum í Grindavík. Íbúar hafa enn ekki fengið leyfi til þess að dvelja í bænum yfir nótt þrátt fyrir að hætta á svæðinu sé talin töluvert minni en áður.