Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu nótt samkvæmt lögreglu en alls voru 97 mál afgreidd í nótt
Fimm ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og eða vímuefna á höfuðborgarsvæðinu.
Í miðbænum var sæmileg mæting landans að vana þegar frí er daginn eftir. Þrír gistu fangageymslur vegna ölvunar í miðbænum en lögregla sinnti einnig tilkynningu um minniháttar líkamsárás á skemmtistað í miðbænum og á bar í úthverfi Reykjavíkur. Lögreglan sinnti fjölbreyttum tegundum útkalla í nótt og voru verkefnin helst tengd umferðarmálum og skemmtanahaldi.
Þá áttu leigubílstjórar áttu í vandræðum með nokkra farþega í nótt en þrjú þannig mál komu við sögu lögreglu í nótt.
Tilkynnt var um varðeld í Elliðaárdal og við Hvaleyrarvatn en þar reyndist fólk vera að grilla. Lögreglumenn sinntu einnig tilkynningu um varðeld í bakgarð. Kom þá í ljós þegar lögreglumenn kíktu í garðinn að þar stóð þar tvennt svartklædd með kattar eyru að grilla. Ekki sást hvort þau voru einnig með skott.